Gellurnar í Þriðja A

3.A bekkur Grunnskólaskor KHÍ

9.29.2006

Saumó saumó

Sælar skvísur. Nú er marensin komin í ísskápinn og kaffið komið í hús. Nú er ekkert eftir nema að fitja upp nokkrar lykkjur :):):):) og strauja nærbuxurnar :):):):) svo mætum við bara allar milli 20:00 og 20:30 í kvöld.

Kveðja Guðný

9.26.2006

Annar drengur fæddur:)

Hæ skvísur!
Hún Pálína eignaðist dreng þann 24. september, hann var 14 merkur og 52 cm og er hann nefndur Kristinn Hallur.
Til hamingju Pálína:)
Kv. María.

9.23.2006

Saumó

Sælar skvísur. Nú er svo komið að ég get verið með saumó á föstudaginn 29 sept. Þó svo að það sé föstudagur getur það verið hefðbundinn saumó. Hvernig lýst ykkur á þessa hugmynd. Endilega commentið á þetta.

Kveðja Guðný

9.19.2006

Saumaklúbbshittingur

Ég, Sunna, Bryndís og Harpa hittumst í hádeginu í dag og fórum að ræða um saumaklúbbinn okkar góða. Okkur finnst kominn tími á hitting. Skipulagið gæti verið það sama og síðast þ.e.a.s allar/flestar koma með eitthvað smáræði að borða og gestgjafinn býður upp á kaffi og kannski gos eða safa. Mér datt í hug að þetta gæti verið á þriðjudagskvöldi því flestar þurfum við ekki að mæta fyrr en um hádegið daginn eftir. Er einhver hér sem býður fram húsnæði? Ég er alveg til í að halda þetta svosem en það er nú skemmtilegra ef einhver önnur nennir því þar sem það er nú frekar hallærislegt að hittast alltaf á sama staðnum í saumaklúbb hehehe en það er reyndar ekkert mál fyrir mig þar sem ég þarf ekki að sjá um uppvaskið í höndunum, ef ég þyrfti þess þá myndi ég sko aldrei bjóða neinum heim.

Jæja tjáið ykkur endilega í kommentunum hér fyrir neðan
Kveðjur Elín

9.10.2006

Laugavatnsferð!!!

Jæja dömur, þá fer að líða að hinni bráðskemmtilegu laugarvatnsferð. Ætlaði að kanna stemminguna fyrir henni... Eigum við ekki að reyna að fjölmenna þar sem þetta er nú síðasta árið og síðasta skiptið sem við getum, munum, ættum, skulum kannski fara.... Það er nú ekki hægt að segja nei við félagsskap hvor annarrar, rútu, vatninu fagra, grilli og "smá" áfengi, er það?

Kveðja frá Ameríkunni
Sigrún G.

p.s. kem heim á fimmtudagsmorgun á þá ætlast ég til að almenninleg stemming hafi myndast og ekkert múður og engar afsakanir teknar gildar!!

p.p.s. Segið samt hvort þið komið eða ekki eða komið eða komið.....

9.05.2006

Það er fæddur drengur:D

Hæ skvísur

Hún María okkar átti dreng í nótt.
Hann var 14 merkur og 53 cm. A
llt gekk rosa vel og þeim heilsast mjög vel(°°,)

Kv. Elva Dröfn