Saumaklúbbshittingur
Ég, Sunna, Bryndís og Harpa hittumst í hádeginu í dag og fórum að ræða um saumaklúbbinn okkar góða. Okkur finnst kominn tími á hitting. Skipulagið gæti verið það sama og síðast þ.e.a.s allar/flestar koma með eitthvað smáræði að borða og gestgjafinn býður upp á kaffi og kannski gos eða safa. Mér datt í hug að þetta gæti verið á þriðjudagskvöldi því flestar þurfum við ekki að mæta fyrr en um hádegið daginn eftir. Er einhver hér sem býður fram húsnæði? Ég er alveg til í að halda þetta svosem en það er nú skemmtilegra ef einhver önnur nennir því þar sem það er nú frekar hallærislegt að hittast alltaf á sama staðnum í saumaklúbb hehehe en það er reyndar ekkert mál fyrir mig þar sem ég þarf ekki að sjá um uppvaskið í höndunum, ef ég þyrfti þess þá myndi ég sko aldrei bjóða neinum heim.
Jæja tjáið ykkur endilega í kommentunum hér fyrir neðan
Kveðjur Elín
Jæja tjáið ykkur endilega í kommentunum hér fyrir neðan
Kveðjur Elín

3 Comments:
At 9:37 e.h.,
Nafnlaus said…
Alveg snilldar hugmynd verð ég að segja. Ég er reyndar í tíma á miðvikudagsmorgnum en ég er svo ung og hress að ég læt það nú ekki stoppa mig :) bara nefnið dagsetningu og ég mæti.
Sambandi við húsnæði þá er mitt nú ekkert stórt... og heldur ekki margir stólar ... nema þá ef fáir koma... og þröngt mega sáttir sita er haggi.. ;)
At 9:54 e.h.,
Nafnlaus said…
Ég skal mæta en get því miður ekki boðið fram húsnæði og er ekki eins heppin og Elín, þarf að vaska upp í höndunum...... Svo hafið þið líka komið 2x heim til mín held ég svo það er ekkert spennó.
At 8:18 f.h.,
Nafnlaus said…
það er líka í góðu lagi að vera heima hjá mér...þarf reyndar að vaska upp í höndunum og mæta í skólann um morguninn...en ég segi eins og Sigrún að ég er ung og fersk og ætti að ráða við það ;-)
kv Harpa
Skrifa ummæli
<< Home