Gellurnar í Þriðja A

3.A bekkur Grunnskólaskor KHÍ

6.28.2006

Danaveldi vá..geðv. gaman

Ég sé að það er ekki mikið bloggað hér en ég ætla að reyna að muna eftir að setja nokkrar línur í sumar. Fjölskyldan mín var að koma frá danmörk eftir tvær vikur í ró og næði, sól og hitinn alltaf yfir 25 gráður, fórum við í Legoland, bon bon land, Köpen-tívoli, sommerland og svo fór stóra stelpan okkar að keppa tvo leiki í knattspyrnu. Þetta var kærkomið frí, vorum við í sumarhúsi í >Faxe ladeplats og er staðsett við strönd sem við notuðum óspart og það var bara gaman. Húsið var í gróðurreit og mikið af trjám, þarna var lítill bambi og mikið af froskum sem að börnin notuðu sem gæludýr.
jæja nú er komið að næstu bekkjarsystir að blogga, einnig væri gaman að sjá myndir af nýju bekkjar-nýburunum. Gengur ekki voða vel í mömmuleik?
Heyrumst hressar Árný (þessi brúna og úthvílda)

6.27.2006

Þá er það lokaspretturinn

Jæja skvísur þá er bara einn vetur eftir já við erum konar á þriðja ár? Við ættum kannski að fara að breyta "Gellurnar á öðru ári" á þessari síðu í eitthvað annað. SVo er það eigum við ekki að hittast á kaffihúsi í sumar hvernig´lýst ykkur á það? Annars er allt gott að frétta frá mér " er reyndar orðin fúll á allri rigningunni en það er vonandi að lagast". Hlakka til að sjá ykkur.
Kveðja Guðný