Gellurnar í Þriðja A

3.A bekkur Grunnskólaskor KHÍ

6.28.2006

Danaveldi vá..geðv. gaman

Ég sé að það er ekki mikið bloggað hér en ég ætla að reyna að muna eftir að setja nokkrar línur í sumar. Fjölskyldan mín var að koma frá danmörk eftir tvær vikur í ró og næði, sól og hitinn alltaf yfir 25 gráður, fórum við í Legoland, bon bon land, Köpen-tívoli, sommerland og svo fór stóra stelpan okkar að keppa tvo leiki í knattspyrnu. Þetta var kærkomið frí, vorum við í sumarhúsi í >Faxe ladeplats og er staðsett við strönd sem við notuðum óspart og það var bara gaman. Húsið var í gróðurreit og mikið af trjám, þarna var lítill bambi og mikið af froskum sem að börnin notuðu sem gæludýr.
jæja nú er komið að næstu bekkjarsystir að blogga, einnig væri gaman að sjá myndir af nýju bekkjar-nýburunum. Gengur ekki voða vel í mömmuleik?
Heyrumst hressar Árný (þessi brúna og úthvílda)

3 Comments:

  • At 9:15 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    oh en hvað það hefur verið ljúft hjá ykkur!! Ég er einmitt að fara til DK yfir verslunarmannahelgina (I know...verð EKKI í Eyjum!!!)Þannig að ég á kannski eftir að heyra í þér Árni og fá ábendinar hvert ég á að fara og hvað ég á að gera ;-)

    ciao í bili

    Harpa

     
  • At 11:45 f.h., Blogger Fyrsti A 2004 said…

    Hæ hæ, frábært hvað það hefur verið gaman hjá ykkur í Danmörku. Jú það er sko rosa gaman í mömmuleik, þið getið skoðað prinsessuna mína á barnalandi. Hún heitir Bergdís Sveinsdóttir:-)

    kv Eva

     
  • At 11:19 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    úps var að sjá að ég kallaði þig Árna!!! átti að sjálfsög ðu að standa ÁRNÝ þarna!

    hehe

    kv Harpa

     

Skrifa ummæli

<< Home