Gellurnar í Þriðja A

3.A bekkur Grunnskólaskor KHÍ

11.10.2006

Tapas barinn

Ég, Bryndís og Sunna erum búnar að ákveða að skella okkur á Tapas barinn þann 17 nóv til þess að fagna því að að við séum lausar úr prísund vettvangsnámsins. Við vorum að spá í að hittast þar svona um klukkan sjö og slúðra, kjafta og borða góðan mat.
Langar ykkur ekki að kíkja með okkur? endilega kommentið hér fyrir neðan og segið okkur hvort þið komið með eða ekki, því ef við verðum margar þurfum við eflaust að panta borð.
Þeir sem vilja geta þá farið á djammið eftir á en við hinar (óléttar, mjólkandi og/eða latar) getum bara farið pakksaddar heim og horft á video eða eitthvað
kveðjur Elín, Bryndís og Sunna

16 Comments:

  • At 5:56 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Veit ekki hvort að ég komist, er að fara norður í jarðaför og veit ekki hvort að ég fari á föstudaginn eða laugardaginn. Lært ykkur vita þegar ég veit meir.

     
  • At 11:55 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    úúú lovlí :) Ég er til í að koma með þar sem ég kemst ekki til útlanda :) Maður verður einhvern vegin að fagna því að þessi törn er búin !!

    Koma svo stelpur engan aumingjaskap, mætum margar og höfum það skemmtilegt :)

     
  • At 12:18 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    ÉG veit ekki alveg hvort ég komist þar sem ég er að fara á útskriftarferðarfund upp í skóla á fimmtudagskvöldinu, ekki víst að ég komist tvö kvöld í röð frá litla kút. En ég ætla að reyna:)

     
  • At 12:32 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Usss María, þessi útskriftaferðafundur er bara bull... mætir bara á föstudagskveldinu frekar!!

     
  • At 6:22 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Ég er að fara á Sykurmola tónleika svo ég kemst ekki.

    kv. Eva

     
  • At 11:01 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Veit ekki alveg með mig, verð nebbla á æfingu og líklega á fund á eftir..læt vita ef eitthvað breytist :)

     
  • At 3:38 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    ég stefni á að koma :-)

    kv Harpa

     
  • At 3:43 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Ég býst við að sleppa þessu þar sem ég er mjólkandi löt á hjara veraldar:) Heimasíða litla kúts er barnanet.is/drangar þið sendið mér línu og fáið lykilorð um hæl..
    kv úr víkinni

     
  • At 9:39 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    eða....gleymdi því að hele familían er að koma frá eyjum, sé ykkur því bara í tíma á mánudaginn :-D

    have fun

    Harpa

     
  • At 3:40 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    djöfull hlakka ég til á föstudaginn, það eru bara 3 dagar eftir af þessu blessaða vettvangsnámi.......

     
  • At 5:48 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Harpa, það er ekki aðferðafræði á mánudag..

     
  • At 7:53 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    hehe ég var búin að átta mig á því....soldið utan við mig ;-)

     
  • At 9:33 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Af hverju er ekki aðferðafræði á mánudaginn?

     
  • At 9:58 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    skiptir einhverju máli hvort það er aðferðafræði, höfum við eitthvað verið að mæta hvort sem er????

     
  • At 10:23 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    hehehe góð Bryndís!!

     
  • At 11:26 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Já ég hafði nú reyndar hugsað mér að mæta á fyrirlesturinn!!!

     

Skrifa ummæli

<< Home