Saumóstuð
Jæja stúlkur. Mikið var nú skemmtilegt í kvöld. Ég var að enda við að taka allt til eftir okkur og henda í uppþvottavélina (sem ég er svoooo fegin að eiga heheheh). Ég er svo sprengsödd að ég get ekki farið að sofa þannig að ég ákvað að skella bara í þvottavél líka og er því að bíða eftir að hún klári.
Það mættu nú færri en höfðu ætlað en það var samt súper skemmtilegt hjá okkur. Allir mættu með fullt af mat og nammi og dönsku fæði og svo var bara troðið í sig og slúðrað.... já og svo má nú ekki gleyma því að Árný var sú eina sem stóð sig almennilega og tók upp prjóna og svei mér þá ef hún kláraði ekki bara heilt ungbarnasett á barnið sem Elva Dröfn segist bera undir belti.
Svo eftir allt átið var bara reykt vatnspípu með eplatóbaki.... Nína hélt reyndar að þetta væri dóp, sagðist sjá það á augunum á okkur hehehehe
Því miður gleymdu allir að taka með myndavél þannig að það eru engar myndir, ég náði reyndar að taka tvær á mína vél áður en hún dó úr orkuskorti.
Ég vil veita Árný, Guðný og Jónínu verðlaun kvöldsins fyrir slökkvistarf en þær vörnuðu því að kofinn brynni ofan af mér þegar þær slökktu RISASTÓRT bál sem kviknaði út frá kerti í stofuglugganum.
Takk fyrir mig og endilega ákveðum strax hver á að halda þetta næst. Kv. Elín
P.S. Sunnan okkar ætlar að hafa partý fyrir árshátíðina og við vorum að spá í að allir leggi smá í púkk og fyrir það kaupum við romm, mintulauf, sítrónu og hrásykur og búum okkur til Mojito....namminamminamm líst ykkur ekki vel á það???

7 Comments:
At 9:41 f.h.,
Nafnlaus said…
Þetta hefur greinilega allt farið úr böndunum eftir að ég yfirgaf svæðið.
At 11:27 f.h.,
Nafnlaus said…
já, takk fyrir kvöldið..það var mjög áhugavert ;-)
líst vel á púkkið ;-)
kv Harpa
At 4:12 e.h.,
Nafnlaus said…
Takk æðislega fyrir kvöldið þetta var geggjað. Mér líst ógeðslega vel á að við leggjum í púkk og gerum bollu:D:D:D
At 8:17 e.h.,
Nafnlaus said…
Þetta hefur greinilega verið dóp fyrst að þú hefur verið að setja í vélar alveg hirst og her fyrir svefninn;) ... er alveg hissa á þessu "rugli" á ykkur hélt þið væruð svo svakalega saklausar og góðar stúlkur hehehe...Ég er alveg til að leggja í púkk með ykkur og mun kannski bara narta í laufin áður en þau verða sett í bolluna..
At 12:21 f.h.,
Nafnlaus said…
ég er til púkk
At 7:45 e.h.,
Nafnlaus said…
Takk fyrir kvöldið, ég til í púkk.
At 12:20 f.h.,
Nafnlaus said…
Það hefur greinilega verið eitthvað í þessu eplatóbaki Elín þar sem litli eldurinn í sprittkertinu var orðin að RISASTÓRU báli og stroffið hjá Árný var orðið að ,heilu ungabarnasetti, hehe... en þetta var mjög skemmtilegt hjá þér Elín mín þó ég hafi komið seint og MIKIÐ MIKIÐ hlegið hmmmm... það var kannski eitthvað í þessu eplatóbaki ?????:)) En allavega þá er ég til í að leggja í púkk
Skrifa ummæli
<< Home