Gellurnar í Þriðja A

3.A bekkur Grunnskólaskor KHÍ

9.22.2005

Bjórkvöld!!

Bara að benda á að það er bjórkvöld á vegum skólans á Glaumbar annað kvöld:)
Eigum við ekki að rifja upp gamla góða bekkjaranda A-bekkjarins og mæta hressar og kátar?
Hver vill með...???

9.18.2005

Myndasíða

Sælar skvíses!

Eins og þið sjáið kannski eru gömlu myndirnar okkar komnar hérna inn til hliðar :) Ég fékk kallinn til að hjálpa mér við að setja inn link, svo ætla ég að reyna að koma nýju myndunum inn sem fyrst. Ég á voða mikið af fínum myndum af okkur.. Líst ykkur ekki vel á þetta??
Sjáumst á morgun.

Knúz María.

9.12.2005

Ófrumleg í dag....

Sælar sælar
Takk kærlega fyrir síðast þær sem komu á Laugarvatn. Hinar sem ekki komuð, ykkar var saknað. Nokkuð gaman fannst mér fyrir utan þessa gífurlegu rigningu. En ég ákvað að setja þennan snilldar link ykkur til skemmtunar. Held það er hægt að læra mikið af þessum gaur ;)
Hafið hljóðið á:
http://www.hugi.is/hahradi/bigboxes.php?box_id=51208&f_id=1258

Kveðja
Sigrún

9.08.2005

Gyllinæðin ekki að gera sig

Mér lýst vel á að sleppa þessari gyllinæð á ballinu, hún er ekki að gera sig, ég vildi þá heldur hafa blöðrur fyrir brjóst og njóta mín einu sinni með stór eða troða inná rassinn og hafa hann stóran frekar en að hafa hangandi gyllinæð aftan úr mér sem gæti líka miskilist sem hægðir, sorry, en mer líst vel á þetta klappstýru dæmi,(hefur verið draumur lengi) er samt ekki alveg viss um að ég komist Styrmir er eittvað slappur greyið en ég vona bara að hann sé ekki að verða veikur svo ég geti mætt sem klappstýra með ykkur :) ,,,,Kv, Nína

Ekki gyllinæð

Núna er ég að ,,læra" og var að skoða myndirnar frá ferðinni síðasta ári á Laugarvatn og mér fannst svo gaman að sjá allt fólkið sem var einsklætt og allir í svaka stuði, verður meiri samheldni innan hópsins. Hvað segið þið um að droppa gyllinæðarþemanu sem við Elín ákváðum í gærkvöldi og vera klappsýrur? Við gætum keypt svona pom poms í Bónus og verið með tíkó, alveg sama hvernig og þær sem eru með stutt hár verða bara með svona lítil stýri?
Kv. Bryndís

ps. ég gæti nú kannski hent í svona búninga handa okkur öllum ef það er áhugi?

9.06.2005

Rétt upp hönd sem ætla á laugarvatn

Ótrúlegt er komið að Laugarvatnsferðinni aftur, við ekki lengur í fyrsta bekk og aldrei saman í tíma snögt, snögt, eigum við því ekki að hittast í ferðinni? Stóra spurningin er í hverju eigum við að vera, nokkrar hugmyndir hafa komið upp t.d einnota málingargallar, prinsessur, stuttermabolir sem við myndum svo bara tússa eitthvað á þá svo var ein hugmynd um að vera í flíspeysum, oft talað um að í kennó séu bara kellingar í flíspeysum, spurning hvort fólk myndi ná djókinu eða bara finnast við ótrúlega halló [hadlou].
Hvað segið þið hvernig eigum við að gera??
kv. Bryndís á hraðferð

9.02.2005

í upplýsingatækni og skólastarfi

hæ ég hérna í tíma, geðv. gaman!!!!! Er alveg sammála henni Hörpu hittingur á mánudaginn kemur í hádeginu. Þessi vika er búin að vera rosa mössuð, eins og unglingarnir segja, tími og aftur tími. Vonandi verður rólegra í næstu viku, með saknaðar kveðju Árný

Í upplýsingartækni og skólastarfi

9.01.2005

svo einmana...

voðalega finnst mér þetta skrýtið að vera svona all alone!! maður er er í endalausum götum eða bara ekkert í skólanum(lítið á fim og ekkert á fös) þannig að maður hittir engan!!! Mér finnst að við ættum alltaf að borða saman og/eða hittast allavega á mánudögum eftir siðfræði og miðvikudögum eftir talað mál og framsögn því þá erum við allar pottþétt hér :)

*grát grát*

kv Harpa