Gellurnar í Þriðja A

3.A bekkur Grunnskólaskor KHÍ

9.06.2005

Rétt upp hönd sem ætla á laugarvatn

Ótrúlegt er komið að Laugarvatnsferðinni aftur, við ekki lengur í fyrsta bekk og aldrei saman í tíma snögt, snögt, eigum við því ekki að hittast í ferðinni? Stóra spurningin er í hverju eigum við að vera, nokkrar hugmyndir hafa komið upp t.d einnota málingargallar, prinsessur, stuttermabolir sem við myndum svo bara tússa eitthvað á þá svo var ein hugmynd um að vera í flíspeysum, oft talað um að í kennó séu bara kellingar í flíspeysum, spurning hvort fólk myndi ná djókinu eða bara finnast við ótrúlega halló [hadlou].
Hvað segið þið hvernig eigum við að gera??
kv. Bryndís á hraðferð

8 Comments:

  • At 11:20 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Ég kem, ekki spurning.

     
  • At 2:32 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Var ekki nóg að skrifa þetta einu sinni Elín mín ;) híhí.. en allavegan mun ég mæta með á Laugarvatn ekki spurning, varðandi búninga þá er mér slétt sama hvað það verður en mér finnst það ekkert vera neitt "möst" að vera í búningum. Líst vel á boli til að skrifa á en veit ekki hvað þetta pompomps er sem Elva var að stinga upp á..

     
  • At 3:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    svona hristi-dót sem klappstýrur nota

     
  • At 10:33 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    ég gerði hérna smá mistök úbs eyddi óvart út commentunm sem elskan okkar hún Elín var búin að skrifa. Innihaldið fannst mér of dónlegt til að vera hér fyrir allra augum á netinu, aldrei að vita hver kíkir hér inn, nei ég er bara að bulla. Það komu fram tvær hugmyndir um búninga, í commentinu, að vera með klappstýrudót eða með dindil á rassinum, troða út nælonsokk. Elín minnir það ekki kannski á eitthvað annað, hvernig datt þér þetta í hug. Svo held ég að halló sé hljóðritað [hadlau:]

     
  • At 10:42 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    það væri nú svolítið fyndið ef fólk myndi misskilja það þannig. eða við myndum hafa búningin þannig

    Kalli: í hverning búning eruð þið

    Bryndís: Við erum með gyllinæð!!!!

     
  • At 10:46 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    þá verður þú líka að mæta

     
  • At 12:12 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Ég kem ekki því að ég verð ekki á landinu:) En góða skemmtun þið sem ætlið að fara og halda uppi heiðri bekkarins með gilinæði og ekki koma heim pompoms hehehe

     
  • At 8:49 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Jæja stelpur... GYLLINÆÐ????? Má ég þá hafa mína bara innan á buxunum... ;) persónulega finnst mér nóg að hafa þetta pompomps :)

    Guðný hvert er verið að fara??

     

Skrifa ummæli

<< Home