Sælar elskurnar!
Nú er Maja komin í djammgírinn eftir rólegt útilegu sumar :) já búin að fara hringinn og alles. Þetta er búið að vera alveg yndislegt sumar, hjá mér allavegana, og ég vona að það sama hafi verið hjá ykkur, ég er samt alveg voðalega spennt að byrja í skólanum aftur og hitta ykkur allar.
En ástæðan fyrir þessu bloggi mínu er að það er nýnemakvöld hjá KHÍ á fimmtudagskvöld á Hverfisbarnum og þó að við séum ekki nýnemar lengur þá finnst okkur Nínu alveg bráðnauðsynlegt að kíkja þangað og vonum við að þið viljið koma með, hvernig líst ykkur á það??
Svo í öðru lagi þá ætla ég að halda stelpupartý á laugardagskvöld, það er Stuðmannaball út á Nesi og stefnan tekin þangað eftir partýið, hér með er ykkur öllum skvísunum í bekknum boðið að koma (s.s í partýið ég ætla ekki að borga fyrir ykkur inn á ballið;) ) !!
Það verður alveg örugglega svaka gaman eins og vanalega þegar við hittumst ;)
Endilega kommentið hvort þið ætlið að mæta eða ekki:) ef þið heyrið í þeim sem ekki fara reglulega inn á bloggið látið þær endilega vita!!
Knús og knús María.