Nýnemakvöld og STELPUpartý!!
Sælar elskurnar!
Nú er Maja komin í djammgírinn eftir rólegt útilegu sumar :) já búin að fara hringinn og alles. Þetta er búið að vera alveg yndislegt sumar, hjá mér allavegana, og ég vona að það sama hafi verið hjá ykkur, ég er samt alveg voðalega spennt að byrja í skólanum aftur og hitta ykkur allar.
En ástæðan fyrir þessu bloggi mínu er að það er nýnemakvöld hjá KHÍ á fimmtudagskvöld á Hverfisbarnum og þó að við séum ekki nýnemar lengur þá finnst okkur Nínu alveg bráðnauðsynlegt að kíkja þangað og vonum við að þið viljið koma með, hvernig líst ykkur á það??
Svo í öðru lagi þá ætla ég að halda stelpupartý á laugardagskvöld, það er Stuðmannaball út á Nesi og stefnan tekin þangað eftir partýið, hér með er ykkur öllum skvísunum í bekknum boðið að koma (s.s í partýið ég ætla ekki að borga fyrir ykkur inn á ballið;) ) !!
Það verður alveg örugglega svaka gaman eins og vanalega þegar við hittumst ;)
Endilega kommentið hvort þið ætlið að mæta eða ekki:) ef þið heyrið í þeim sem ekki fara reglulega inn á bloggið látið þær endilega vita!!
Knús og knús María.

12 Comments:
At 10:46 f.h.,
Nafnlaus said…
Hvað er í gangi!!! Erum við orðnar heimsfrægar með bloggið okkar;) nei þetta hlýtur að vera einhver vírus eða hvað????
Ég sem hélt að þið væruð orðnar svona duglegar að kommenta hehe.. :)
At 12:17 e.h.,
Nafnlaus said…
long time no seen...vá hvað þetta sumar var fljótt að líða ;) Mér líst rosa vel á stelpupartýið, en ég er mjög líklega að fara út á land næstu helgi, en María ég læt vita ef ég kemst!! Annars hlakka ég rosalega til að sjá ykkur aftur í skólanum :)
luv ásta
At 1:08 e.h.,
Nafnlaus said…
heheh ég fékk sjokk að það væru 16 búnir að kommenta. Þetta er bara rusl María mín, einni þarna uppi þykist finnast gaman að lesa greinarnar hjá okkur hehehehehe
En ég skal koma á fimmtudaginn ef ég verð ekki farin til Hólmavíkur, ég kemst ekki á laugardaginn því þá verð ég þar í brullaupi
kv Elín~kvefuð og veik í vinnunni
At 5:27 e.h.,
Nafnlaus said…
er mín kominn á séns.... bara útlendingar.... verð á fótboltamóti alla helgina, bæði laugardag og sunnudag, en kannski kíki ég í partýið og syngi smá karóki.... ætlar Nína með kallinn?
kveðja Árný
At 5:39 e.h.,
Fyrsti A 2004 said…
Sælar stelpur, vonandi hafið þið haft það gott í sumar. Ég verð á ættarmóti á laugardaginn í Biskupstungunum svo ég missi af stelpupartýinu. Góða skemmtun og djammið þið vel og lengi :-) sjáumst svo á mánudaginn
Kveðja Eva.
At 6:04 e.h.,
Nafnlaus said…
Árný mín þetta er stelpupartý!! Þannig að Nína fær ekkert að koma með kallinn... :) það er einum karlmanni boðið í stelpupartýið en það er bara útaf því að hann er gay;)
Þú verður allavegana að kíkja skvís og taka eins og eitt lag eða svo..
Þið hinar, leiðinlegt að þið komist ekki:( en við sjáumst allavegana á mánudag, er ekki málið að hittast í hádeginu á mánudag í nýja mötuneitinu og knúsast aðeins og kannski borða líka..
At 9:15 e.h.,
Nafnlaus said…
Ég er að fara í brúðkaup á laugardaginn, hefði verið gaman að koma. Við verðum bara að fjölkvenna í Laugarvatnsferðina, ég las einhversstaðar að hún væri 9.sept.
At 9:25 e.h.,
Nafnlaus said…
Ég reyndi að eyða út þessu rugli
At 12:07 f.h.,
Nafnlaus said…
Hey Bryndís snillingur, gott að þú náðir að eyða þessu druslum út...
En leiðinlegt að þú komist ekki í partýið, það eru svo margir að fara í brúðkaup á laugardaginn! Eru allir að fara í sama brúðkaupið:)
Ásta endilega vertu í bandi ef þú getur komið:)
At 9:24 e.h.,
Nafnlaus said…
ég kem á morgun og ég kem á laugardkv :D
hehe maður klikkar nú ekki því
kv Harpa
At 11:39 e.h.,
Nafnlaus said…
Auðvitað klikkarðu ekki á því rokkari:)
At 11:57 f.h.,
Nafnlaus said…
Þar sem ég get ómögulega bloggað bara sent svona komment, þarf að fá hjálp með þetta bloggdæmi þá geri ég þetta bara svona! Ég vona að þið hafið skemmt ykkur vel í partýinu og á balli í gær! Ég var hins vegar í fimmtugsafmæli hjá frænda mínum og hitti þar alla ættina, m.a Villu frænku og Óskar. Við sitjum öll saman familían og þá segir Villa frænka: heyrðu Dísa mamma þín var að segja mér að þú hefðir skellt þér í Kennó, ég veit að það eru voðalega margir nemendur þarna en ekki ertu með barnabarninu mínu henni Vilborgu Guðrúnu Sigurðardóttur í bekk!!!!
Lítill heimur!
Kveðja Arndís
Skrifa ummæli
<< Home