3.31.2005
Vildi bara benda á að ef þið eruð óánægðar með að bekkjunum blandað saman og búnir til nýjir bekkir í NN eftir vettvangsnámið er alveg tilvalið að senda Meyvant meil og láta hann vita óánægjunni :)
3.28.2005
páskalok
hæ skutlur
þá er þessum páskum lokið, litli stráksinn á heimilinu búin að vera ælandi helmingin af páskunum, annars bara étið, drukkin öl, sofið og passað að ekki sé neitt lært.
Svo vaknaði ég við þann draum að leið...ar...bræ..kkurnar... HA HA meina leiðarbók no. 3 á víst að koma út!!! ekki satt. Eruð þið með á hreinu hvað á að skrifa um? ég er búin að skrifa um tvær kynningar og bekkjarstjórnun, þarf ég líka að skrifa um Eineltið..??
Gangi ykkur annars vel í vettvanginum og látið í ykkur heyra, við stöllur í sexý hópnum ætlum í göngutúr í fyrramálið og kanna aðstæður, þ.e. hvort vegalengdin sé nokkuð of löng fyrir dömur eins og okkur.....
kram og knús... Árný
3.25.2005
Úff
Sjaldan hefur Föstudagurinn langi verið svina stuttur. Hann var svo flótur að líða að mér tókst ekki að opna skólabók. Vonandi verða hinir dagarnir ekki svona flótir að líða því það styttist í vettvangsnámið og prófin.
Kveðja Guðný
Kveðja Guðný
3.23.2005
Gleðilega Páska Skvísur
Sælar allar saman.
Mikið er nú gott að vera komin í páskafrí. Ég ákvað að gera ekkert annað í gær, þegar að ég var búin í skólanum klukkan 5 og svo í dag en að dúlla mér heima og vera með krökkunum. Þetta er yndislegt líf en ég ætla bara að óska ykkur gleðilega páska og góðs gengis í vettvangsnáminu.
Kveðja Guðný.

3.15.2005
Brandari!!!(°°,)
Guðrún fór einn daginn til prestsins í kirkjunni sinni. "Séra,"sagði hún, "ég á við svolítið vandamál að stríða, eiginmaðurinn minnsteinsofnar alltaf í messunum þínum. Það er orðið ansi vandræðalegt."Hvað get ég eiginlega gert?""Ég er með hugmynd," segir presturinn. "Taktu þessa saumnál með þérnæst og þegar ég tek eftir því að hann sé að sofna, þá gef ég þérmerki með því að kinka kolli og þú stingur hann í lærið með nálinni"
Næsta sunnudag í kirkjunni tók presturinn eftir því þegar Einar,maður Guðrúnar var að sofna og ákvað að setja plan sitt í gang."Og hver var það sem fórnaði sér fyrir syndir ykkar" sagðipresturinn, kinkandi kolli til Guðrúnar.
"Jesús Kristur!", öskrar Einar þegar Guðrún stingur hann í lærið.Mikið rétt hjá þér, Einar" segir presturinn brosandi.Presturinn tekur svo eftir því þegar Einar er að dotta aftur.Hver hefur gefið ykkur frjálsan vilja og mun gefa ykkur eilíftlíf?" spyr hann söfnuðinn um leið og hann gefur Guðrúnu merki."Guð, minn góður!" öskrar Einar þegar hann fær nálina í lærið."Rétta hjá þér á ný, Einar" segir presturinn skælbrosandi.
Presturinn heldur áfram að predika en tekur ekki eftir því þegarEinar sofnar á ný. Presturinn gleymir sér í ræðunni og þegar hannleggur áherslu á setningarnar sínar kinkar hann óvart kolli.
"Og hvað sagði Eva við Adam eftir að hafa fætt honum 99´unda sonhans?" spyr presturinn söfnuðinn hátt og snjallt.Nálin stingst í lærið á Einari sem öskrar "EF ÞÚ STINGUR ÞESSUMHELVÍTANS HLUT Í MIG EINU SINNI ENN, ÞÁ BRÝT ÉG HANN Í SUNDUR OGTREÐ HONUM UPPÍ RASSGATIÐ Á ÞÉR"
Kveðja Elva Dröfn
3.08.2005
Flotta skutlur
hæ frábæru skutlur.
það er svo gaman að vera til, styttist í prófin og eins gott að byrja að lesa eitthvað... hvernig gengur ykkur með þessa námsskrár ritgerð? ég er alveg out of space þar, mig langar ekki að skrifa þessa ritgerð og hef mig ekki í að byrja.... eruð þið til í að senda mér smá námsskrár orku og þá vonandi get ég byrjað... annars kom hugmynd upp í dag að Árný myndi bara skrifa um duldu námskránna og skila auðum blöðum? það gæti verið smart..
kveðja Árný öldungur

3.06.2005
Árshátíðarmyndir!!!
Hæ stelpur!
Jæja ég er búin að vera að vesenast í að koma myndunum inn á síðuna en það var ekkert pláss í myndaalbúminu og ég er nú ekki sú klárasta á tölvur hmmmm.... :)
En ég stofnaði bara nýtt albúm og meira að segja tvö... hehe.. og hérna er árangurinn( password fyrstia2) og hér líka (password fyrstia3) !!
Ég er alveg örugglega búin að gera þetta mikið flóknara en þetta þarf að vera, víst að það þarf password.
Vona að þetta sé í lagi:)
Knús og kveðja María