páskalok
hæ skutlur
þá er þessum páskum lokið, litli stráksinn á heimilinu búin að vera ælandi helmingin af páskunum, annars bara étið, drukkin öl, sofið og passað að ekki sé neitt lært.
Svo vaknaði ég við þann draum að leið...ar...bræ..kkurnar... HA HA meina leiðarbók no. 3 á víst að koma út!!! ekki satt. Eruð þið með á hreinu hvað á að skrifa um? ég er búin að skrifa um tvær kynningar og bekkjarstjórnun, þarf ég líka að skrifa um Eineltið..??
Gangi ykkur annars vel í vettvanginum og látið í ykkur heyra, við stöllur í sexý hópnum ætlum í göngutúr í fyrramálið og kanna aðstæður, þ.e. hvort vegalengdin sé nokkuð of löng fyrir dömur eins og okkur.....
kram og knús... Árný

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home