Gellurnar í Þriðja A

3.A bekkur Grunnskólaskor KHÍ

10.23.2005

Einn léttur á laugardagskveldi...

Endur fyrir löngu, í landi langt langt í burtu, rakst falleg, sjálfstæð og sjálfsörugg prinsessa á frosk þar sem hún sat og velti vöngum yfir vistfræðilegum álitamálum við bakka ómengaðrar tjarnar á fagurgrænu enginálægt kastalanum sínum.

Froskurinn stökk upp í kjöltu prinsessunnar og sagði: Fagra frú, ég var eitt sinn gjörvilegur prins en grimm norn lagði á mig álög. Ef þú smellir á mig einum kossi mun ég aftur verða að þeim snotra prinsi sem ég raunverulega er.

Þá getum við, mín kæra, gifst og stofnað heimili í kastalanum þínum. Þú getur framreitt málsverði fyrir mig, þvegið klæði mín, alið börnin mín og fundið til þakklætis og hamingju um alla eilífð.

Sama kvöld sat prinsessan yfir málsverði sínum - léttsteiktum froskalöppum í hvítlaukssmjöri - og hló lágt með sjálfri sér:

Ég held nú fokking síður!



Kveðja Sigrún

1 Comments:

  • At 10:34 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Hahahah.... góður:)

     

Skrifa ummæli

<< Home