Gellurnar í Þriðja A

3.A bekkur Grunnskólaskor KHÍ

5.30.2006

Hvað er málið?

Hvað eru kennararnir að hugsa........ þeir virða enga skilafresta á einkunnum. Ég á en eftir að fá fjórar einkunnir og eru þrjár þeirra komnar á tíma......... og sumar vel það. Ég skil ekki alveg eru þetta ekki sömu manneskjurnar sem að eru að slóra við að gefa einkunnir og eru alltaf að ýtreka við okkur að það sé nauðsynlegt að skila verkefnum á réttum tímum og engin undan tekning. jæja ég ættla að vona að þið hinar séu búnar að fá sem flestar ykkar einkunnir. Guðný alveg bráluð.

5.23.2006

Smekklegt!


Í kvöld munum við Sunna birtast í þættinum Innlit útlit og breyta barna-herbergjunum hjá hvor annari, með aðstoð ástkærra eiginmanna okkar. Einnig eru þarna einhverjir stílistar sem koma við sögu en þeir eru nú bara til skrauts þar sem við Sunna erum annaálaðar fyrir smekklegheit........

Árný ég vona að þú sjáir þetta!!

5.17.2006

Fjölgun í bekknum og partý á föstudaginn!!

Hæ elskurnar mínar...

Ég ætla nú að byrja á því að óska Evu og Jónínu til hamingju með litlu prinsessurnar sínar... það væri nú gaman að heyra frá ykkur, hvernig hafi gengið og ég tala nú ekki um ef þið getið sett myndir af þeim hérna inn:o)

Síðan ætla ég að segja takk fyrir síðast til þeirra sem komu á Red Chili á mánudaginn að borða, þetta var alveg frábærlega huggulegt hjá okkur:) góður félagsskapur og góður matur.. við verðum að endurtaka þetta í sumar, ekki spurning..

Að endingu langar mig að kanna hvernig stemningin er fyrir föstudagskvöldinu í Kennó (próflokatjúttinu). Ég og Nína ætlum allavega að skella okkur (surprise, surprise) ;) veit að margar af ykkur komist ekki, annað hvort farnar til útlanda eða út á land..
En þið sem komist með okkur endilega commentið um það... við getum kannski farið eitthvað að borða áður eða hreinlega keypt grillkjöt og grillað upp í skóla, já eða bara borðað heima hjá okkur og mætt eftir það upp í skóla... spáum í þetta!!

En allavega vona að þið séuð að hafa það gott allar og góða ferð þið sem eruð að fara til útlanda:o)

Knús María.