Gellurnar í Þriðja A

3.A bekkur Grunnskólaskor KHÍ

1.25.2006

Árshátíðið

jæja stelpur nú styttist í árshátíðina:O) Hvernig er staða hjá ykkur á ekki að skella sér á hana. Hvernig væri líka að við færum nú að hittast og halda partý eða eitthvað:O) En ég vildi bara láta ykkur vita að það er búið að búa til bloggsíðu um árshátíðina þar sem helstu upplýsingar muni koma fram og þess háttar. Linkurinn á hana er http://www.blog.central.is/khi-arshatid endilega kíkið þar inn.
Kveðja Elva Dröfn

1.20.2006

Þýðingin...

Hurru, ég held að ég fái þýðinguna á morgun, Mánudag allaveganna er hún nánast í höfn. Ég þekki tvær sem eru með hana og ég ætlaði að ljósrita eintak handa´mér.
Bloggið hérna er að lifna við og við verðum bara að lofa hver annari að blogga einu sinni í viku ;-)
ég ætla að reyna það, það var frábært í Lindarskóla, krakkarnir frábærir og ég dauðþreytt eftir að þurfa að vinna svona mikið.
Vakna fyrir allar aldir og skipuleggja daginn út og inn með heimilið á fullu.... höres í fyrramálið.. í íslensku Árný
jæja þá er að prufa þetta blogg vonandi gengur þetta hjá mér. Vonandi höfðuð þið það gott í áheyrninni allar saman. Bið að heilsa í bili Bæó Ragna

Daginn..

Sælar sælar..
Þetta blogg er nú alveg í dauðateygjunum verð ég að segja... Vonandi gekk allt vel í áheyrnarvikunni.
En ég var að vellta fyrir mér hvort einhver hefði rekist á þýðinguna á ensku bókinni í Íslenskukennaranum, ef hún er þá til. Ég væri mikið meira en fegin að fá afrit af því :)
Og Elín hvenar hafðiru hugsað þér að hafa smá hitting.. var það í febrúar?
Kveðja
Sigrún

1.11.2006

Tileinkað Hörpu

Sælar allar. Þar sem að Harpa var að kvarta yfir því í dag að engin væri að blogga, ákvað ég að bæta úr því svo að hún hefði eitthvað að lesa. En hér með er ég búin að koma nýju bloggi af stað og skora á þær sem að lesa alltaf bloggið en blogga lítið eða ekkert að prófa það þarf ekki að vera um neitt merkilegt bara svona að láta vit af ykkur.

Kveðja Guðný. :) :) :) :) :) :) :) :) :) :) :) :) :) :) :) :) :) :) :) :) :) :)

1.04.2006

puma skór

hæ skutlur
stelpan mín fékk puma leður striga skó í jólagjöf nr. 39 (dumb grænir) geðv.flottir en þeir eru of litlir, þeir eru keyptir á spáni og kostuðu aðeins 7000 kall íslenskar. vitið þið um einhverja sem langar í nýja skó og eru tilbúnir að kaupa þá af mér? ég sjálf nota stærra (því ver og miður).
Ég get komið með þá í skólan ef þið viljið?
höres Árný
ps gleðilegt ár og takk fyrir það gamla.