Gellurnar í Þriðja A

3.A bekkur Grunnskólaskor KHÍ

10.04.2004

Freaking out!!

Jæja stúlkur, þá er komið að stóru stundinni sem hefur orsakað allar þessar magapínur og hlaup á klósettið undanfarnar vikur.... við eigum að skila ritgerðinni í mál og rit í fyrramálið og hér sit ég kófsveitt og hálf meðvitundarlaus af stressi að reyna að böggla saman óbrenglaðri setningu í lokaorðunum hjá mér.
Vonandi að maður fái bara yfir 8 (bjartsýn kona ;o) svo að við þurfum ekki að rembast við að laga þetta allt aftur!!
Allavega ætla ég að krossa fingurna þangað til að við fáum helv**ið afhent aftur.
Sjáumst hressar á þriðjudaginn og vonandi fær maður þá slúðursögur frá björkvöldinu.... svona af því að maður gat ekki mætt, ég greindist nefninlega með sjúkdóminn leti rétt fyrir mætinguna þannig að ég komst bara ómögulega að hitta ykkur ;o)
Kveðjur Elín

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home