Gellurnar í Þriðja A

3.A bekkur Grunnskólaskor KHÍ

10.02.2004

Hér er fjörið, hér er fjörið, fjörið allaf fjörið!

Ja hérna megin hér... fótboltamótið var tekið með glans, reyndar stóðum við okkur betur á pöllunum en á gólfinu, en það er ólympíuandinn sem gildir. Um kvöldið var bjórkvöld og aukafundur skhi. Bjórkvöldið gekk alveg glimrandi, við hömstruðum bjórinn og vorum auðvitað aðallinn á staðnum. Pálína lét svo hafa sig í þá vitleysu að bjóða sig fram sem meðstjórnanda í stjórn skhi. Það vildi svo skemmtilega til að hún var kjörin eftir að hafa flutt fremur dapra framboðsræðu en ótrúlega meðmælendaræðu sem Ása flutti. Hinar framboðsræðurnar voru ekki upp á marga fiska...né meðmælendaræðurnar. Eftir að bjórinn var teigaður var haldið niður á Pravda með STRÆTÓ. Þar boru bumburnar hristar og rassarnir gripnir eins og venjan er á svona skemmtistöðum. Eftir situr bara þunnur haus og vöðvabólga í herðum eftir of margar glasalyftingar. En það má með sanni segja að A-bekkurinn er aðalbekkurinn og það sem ég held að við séum öfundaðar....
kv Pálína

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home