Það er komið sumar....
Jæja loksins er komið sumar og ætla ég að njóta þess. Er búin að lofa henni Guðnýju minni að klára að mála húsið mitt svo að hún þurfi ekki að skammast sín fyrir mína hönd he he. Svo er stefnan á útilegu helgina fyrir verslunarmanna helgina á Langbrók í Fljótshlíð, svo sumarbústað um verslunarmanna helgina (held ég) svo er Siglufjörður helgina eftir það.
Hugsið ykkur ég á fellihýsi og hef ekki haft tök á að nota það í sumar sökum veðurs, en nú á að taka rúntin en hann verður ekki mikill því helv.. bensínið er svo dýrt... er allt að verða brjálaðslega dýrt hérlendis, er enginn sem ætlar að stoppa þetta.... stöndum saman stelpur og mótmælum....
höres Árný þessi sem er brjál út í bensínverðið...
Hugsið ykkur ég á fellihýsi og hef ekki haft tök á að nota það í sumar sökum veðurs, en nú á að taka rúntin en hann verður ekki mikill því helv.. bensínið er svo dýrt... er allt að verða brjálaðslega dýrt hérlendis, er enginn sem ætlar að stoppa þetta.... stöndum saman stelpur og mótmælum....
höres Árný þessi sem er brjál út í bensínverðið...

4 Comments:
At 10:26 e.h.,
Nafnlaus said…
Er til þriðji A ??? í svona hópi sem var alltaf asskoti sundurlaus, mórall og leiðindi og sumir heilsuðu ekki eftir að komið var á annað ár! Bara spyr??????????????
At 10:59 e.h.,
Nafnlaus said…
VOOOO anda inn og anda út. Að sjálfsögðu er til þriðji A. Hvaða mórall er þú að tala um? og hvernig væri að kvitta undir sig þegar maður skrifar svona inn......
En skemmtu þér nú Árný mín í þessu ferðalagi þínu öfunda þig bara mikið væri alveg til í að vera að gera eitthvað annað í sumar en að afgreiða flíspeysuóða Íslendinga:O) Hlakka til að hitta ykkur allar eftir nokkra daga:O)
At 11:58 f.h.,
Nafnlaus said…
það er nú bara þannig að ef maður vill halda hópinn, þá verður maður að gera líka eitthvað í því sjálfur!! Það er ekki hægt að ætlast til að allir eltist við þig (hver sem þú ert)!! Ég kannast nú ekki við annað en góðan móral í þessum bekk og er það kannski líka af því ég hef reynt að halda sambandi og spjalla við alla þegar ég hitti þá..bíð ekki eftir að alllir komi hlaupandi til mín!!
En annars þá er ég stödd í Eyjum eins og er og er mikið búið að bralla. Búin að fara í fjallgöngur, söltínslu, tuðruferðir, lundaveiði og ég veit ekki hvað og hvað!! Er svo á leiðinni til Danmerkur í næstu viku :-)
jæja, hlakka til að hitta ykkur ALLAR eftir rúml 3 vikur :-)
Harpa
At 5:55 f.h.,
Nafnlaus said…
híhíhíhí þetta er sko alveg rétt hjá ykkur Elva og Harpa. Ég heilsa þeim sem koma almennilega fram við mig og við erum bara nokkuð góður kjarni sem skemmtum okkur saman sama hvort að um fyrsta, annað eða þriðja ár er að ræða.
Ég viðurkenni alveg að hafa ekkert hlaupið á eftir kerlingunum sem hættu að heilsa manni eftir að fyrsta árið var liðið nema í einstaka tilfellum, var bara einfaldlega nokkuð sama hvort þær vildu eitthvað við mig tala eða ekki.
Þið hinar eruð æði pæði og ég hlakka til að hitta ykkur fljótlega aftur.
kv. Elín
Skrifa ummæli
<< Home