Gellurnar í Þriðja A

3.A bekkur Grunnskólaskor KHÍ

7.30.2006

Sælar kæru bekkjarsystur!!!

Jæja þá er ég loksins nettengd á ný. En það sem helst er að frétta af mér er að við fölskyldan erum flutt úr 101 í 112, eitthvað sem ég hélt að við myndum aldrei gera en við erum alveg svakalega ánægð með lífið og tilveruna hérna í Grafarvoginum:) já og annað sem er að frétta af mér er að ég er enn ólétt og er gjörsamlega að springa hehe ;) spurning hvort krílið verði komið í heiminn áður en ég hitti ykkur í skólanum 21. en ég er sett 24. Ég ætla s.s. að prófa að byrja í skólanum.... er svo viss um að ég muni eignast algeran engil sem mun lofa mömmu sinni að fá frið til að læra ;) hehe... en ef ekki þá hætti ég bara og tek þetta seinna.. stefnan er allavega að taka Aðferðafræðina ásamt tveim - þrem öðrum fögum.

En jæja er orðin frekar ryðguð í að blogga en langaði bara aðeins að kasta á ykkur kveðju elskurnar mínar. Mjög fín breyting á síðunni Guðný:) finnst samt frekar leiðinlegt að það séu einhverjir sem eru að koma inn á síðuna með eitthvað skítkast...spurning hver það sé... væri gaman að rekja commentið og finna út hver þetta sé;) en annars látum við þetta ekkert fara í taugarnar á okkur.. við vitum betur, við sem höfum lagt okkur fram um að halda sambandi:) en jæja nóg um það, ég hlakka alveg svakalega til þess að hitta ykkur í skólanum, verst að við létum aldrei verða að því að hittast í sumar.

En svona að lokum eru ekki allir búnir að frétta af nýjustu óléttunni í bekknum??? Allavega er enn ein yndisleg bekkjarsystir ólétt og þó svo að ég sé búin að óska henni til hamingju nokkrum sinnum;) þá langar mig að gera það aftur... til lukku sæta:)

Talandi um börn þá fórum við Elín til Evu að skoða litlu fallegu prinsessuna hana Bregdísi og hún er algert æði... algjört krútt... það var gaman að fá að koma og kíkja á prinsessuna og fallega heimilið þitt Eva. Því miður gat Jónína ekki tekið á móti okkur vegna þess að hún var að skíra og við höfum ekki enn gefið okkur tíma í að fara til hennar:( en vonandi sem fyrst..

Nóg í bili, knús og kossar úr Dofraborgum - María.

8 Comments:

  • At 9:55 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Hæ skvísur!
    Það er gaman að sjá að gengið er orðið spennt að fara í skólann aftur. En ég verð að fara að byrja nú sem fyrst að læra þar sem blessuðu prófin sem maður fékk ekki að taka í maí bíða enn, en það gegnur vonandi bara vel. En eins og þið vitið skvísur eruð þið alltaf velkomnar .
    Kossar og knús
    Jónína og Agnes Inga

     
  • At 2:34 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Til hamingju með nýja húsið.. Hlakka til að hitta ykkur allar í haust. Kannski við ættum að hittast á kaffihúsi eitthvert ágústkvöldið? það væri nú gaman.

     
  • At 4:33 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    ó já ég er nú bara orðin ansi spennt að byrja aftur í skólanum :-)

    líst vel á ágústhitting Guðný...verð með ef það er eftir 7. ágúst :-D

    bið að heilsa...er að fara í RIGNINGUNA í DK :-(

     
  • At 4:45 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Takk fyrir það Guðný:) mér líst svaka vel á ágústhitting...nefnið stað og stund og ég mæti..

     
  • At 1:05 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Halló halló.
    Var að koma úr sólinni í Stokkhólmi, skellti mér þangað óvænt um helgina... ætlaði reyndar til Amsterdam en það er önnur saga :)

    Væri líka til í Ágúst hitting en efast um að komast þar sem ég er svo að fara til Tenerife eftir 9 daga... já það er ungt og það leikur sér :) Visakortið er bara í frystinum að kólna eftir helgina, þangað til ég fer að strauja það aftur ... það er svo seinni tíma vandamál hvernig ég borga reikninginn :)

    En hafið það gott og hittumst aftur í skólanum.. þið kannski glósið fyrir mig þær sem eru í sömu tímum og ég ... ég kem víst ekki aftur heim fyrr en 24 :)

     
  • At 6:05 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Hæ skvísur!
    Ég og Egnes Inga þökkum ykkur kærlega fyrir okkur. Elín og María komu í heimsókn til okkar í dag og var sérstaklega gaman að hitta skvísurnar á ný. En ég hlakka æðislega mikið til þess að hitta ykkur allar fljótlega.
    Kossar og knús
    Jónína og Agnes Inga

     
  • At 6:07 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Móðir sem horfir ekki á það sem hún skrifar en að sjálfsögðu var ég og Agnes Inga heimsóttar.
    Kossar og knús
    Jónína og Agnes Inga

     
  • At 8:47 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Verði ykkur að því Jónína og takk fyrir mig í gær. Gaman að koma til ykkar og takk fyrir kræsingarnar;)

     

Skrifa ummæli

<< Home