Gellurnar í Þriðja A

3.A bekkur Grunnskólaskor KHÍ

11.21.2004

Týpískt fyrir mig

Jæja nú er helgin á enda og skóli aftur á morgun gaman gaman(°°,) Vonandi eru þið búnar að hafa það frábært um helgina. Mín helgi fór í leti og átveislu. Ákvað að hafa það bara kósý víst ég var veik en ég held bara að ég sé öll að koma til, röddin er allan vegna komin aftur(°°,) En það er alveg týpískt fyrir mig að þegar ég verð veik þá svo mikið um að vera. Föstudagskvöldið byrjar þannig hjá að mér er boðið í afmælispartý á laugardeginum til vinkonu minnar og alveg já frábært ég kíki og djamma með henni. Svo rennur laugardagurinn upp og ég er svo slöpp að það er ömurlegt, ákveð að fara ekki í partýið heldur bara að vera heima góða stelpan og ná þessasi flensu úr mér. Svo seinni partinn hringir vinur minn sem ég er ekki búin að heyra ferlega lengi í og býður mér út á borða á Broadway og á sýninguna Með næstum allt á hreinu en þar sem ég kem varla upp orði, hósta eins og hálviti og með stíflað nef þá ákveð ég að neita honum líka. Grát grát alltaf gerist allt á sama tíma hjá mér og helst þegar ég er veik. Jæja nóg af sjálfsvorkun vonandi átti þið betri helgi en ég, sjáumst hressar í skólanum á morgun.
Kveðja Elva Dröfn

1 Comments:

  • At 6:53 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Láttu þér batna sæta :)
    kv María

     

Skrifa ummæli

<< Home