Alveg að springa
Svo mikið stuð var á matnum og bjórkvöldinu síðastliðin fimmtudag(þó ég hafi nú ekki verið jafnlengi og sumir) að æðakerfið hjá mér hrundi. Þegar ég labbaði í skólann morguninn eftir fann ég mikila verki í öðrum fætinum og ákvað að kíkja á hann, var kominn stór marblettur rétt fyrir neðan hné og ekki mundi ég eftir því að hafa rekið mig utan í neitt og átti ég ekki í neinum erfiðleikum með minnið vegna ofdrykkju eða annars ólifnaðar. Ég ákvað að sýna bekkjarsystrum mínum þetta og sérstaklega þeirri sem hefur starfsreynslu úr heilbrigðisgeiranum leist þeim ekki á blikuna þar sem fyrir ofan marblettinn var æð sem var farin að gera sig ansi breiða með því að bólgna upp. Ég gerði það sem allir gera þegar eitthvað bjátar á og hringdi strax í mömmu(sem næstum því stjórnar sjúkrahúsinu á Ísafirði) og leist henni ekki á blikuna, leitaði ég ráða á fleiri stöðum og voru allir sammála um að ég ætti að komast undir læknishendur sem fyrst en vandamálið var að ég var að fara gera verkefnið fyrir Mál og rit með hópnum mínum en vegna annarlegs ástands míns þar sem ég bara grét fyrir framan stelpurnar vegna hræðslu um að fóturinn þyrfti að fara við hné ákvað hún Elín að fara með mig upp á slysó. Hópstarfinu var því frestað. Elín fór með mig uppeftir hún fór meira að segja með mér alla leið inn á stofu þar sem ungur læknir kom og skoðaði á mér fótinn(sem var eins og á þýskum kúluvarpara). Niðurstaðan var sú að æð hefði sennilegast sprungið og ég átti að bera bólgueyðandi krem á fótinn og fylgjast vel með fætinum. Fyrst ég var nú stödd hjá lækni lét ég kíkja á kvefið í mér og kom í ljós að sýking væri sennilegast komin í kinnbeinsholurnar og ég fékk pensilín. Þegar læknirinn brá sér aðeins frá bennti ég Elínu á að læknirinn væri ungur og ætti kannski enga konu hún sagðist ekkert með lækni að gera þeir væru henni ekki að skapi. Ástæðan fyrir því að ég skrifaði þessa langloku er að þakka henni Elínu fyrir að hugsa svona vel um bekkjarsystur sína og þarna er greinilega góð stelpa á ferð maður sér það þegar hún brosir.
kv. Bryndís
kv. Bryndís

2 Comments:
At 12:01 f.h.,
Fyrsti A 2004 said…
úff....en gott að allt er í lagi...Elín þú er frábær :)
kv Harpa
At 12:39 f.h.,
Nafnlaus said…
Æi elsku kellingin gott að Elín sá svona vel um þig, vona að þér sé að batna!!
kv. María.
Skrifa ummæli
<< Home