Gellurnar í Þriðja A

3.A bekkur Grunnskólaskor KHÍ

11.15.2004

Smá veikindi á kantinum!

Sælar stelpur...ég bauð Vilborgu í mat á föstudagskvöld og svona tíu mínotum eftir að hún fór þá helltist yfir mig þvílík verkjabuna...í hnakkanum, hálsinum, niður eftir bakinu og hausinn alveg að springa. Það var ekki fyrr en ég byrjaði að kippast til að ég hugsaði: "Ætli ég sé komin með hita?" Svo var...39 stiga hiti var komin í hús...á laugardeginum átti ég að fara út að borða með vinnunni á carpe diem...en nei...mér fannst betra að vera bara veik heima. Hver þarf á humarhölum og steikum að halda þegar maður hefur íbúkod og félaga við hendina!
Síðan verð ég nú aðeins að blogga um Eddu hátíðina...erum við að grínast með þetta...flest allt var nú bara fínt ... en sjónvarpsmaður ársins...Ómar Ragnarsson...á hvaða öld erum við og hvenær sést hann í sjónvarpi ég bara spyr...? Er ekki lámark að sjást í sjónvarpi einu sinni í viku til að geta verið sjónvarpsmaður ársins? Svo var eitthvað annað sem ég var hneyksluð á en ég náði greinilega að þurrka það strax úr minninu!
Annars er ég í veikindunum í mestu makindum að flakka um digital ísland og á einni stöðinni sá ég sex konur sitja í hring. Þær emjuðu og gáfu frá sér stunur og viti menn...ekki var þetta porno stöð...nei þær voru bara að missa sig yfir nýjum magaþjálfa...!

Kv úr höfuðstöðvum veikindanna...
kv Pálína

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home