Isafjörður....segir:
Sælar stúlkur. Hérna fyrir vestan gengur allt frekar vel. Kom hingað seinnipart á miðvikudag. Setti upp sýninguna á fimmtudagskvöld og skalf eins og lauf í vindi frameftir föstudegi.
Þegar opnunin á sýningunni varð að veruleika...skalf ég enn meira og roðnaði og svitnaði. Um sjötíu manns mætti á opnunina og allt gekk glimrandi. Fólk fékk engan umhugsunarfrest því myndirnar gengu út...eða hlupu út. Fyrst fjórar, svo aðrar fjórar og svo þrjár í viðbót...samtals ellefu farnar og aðeins þrjár eftir sem ég best veit. Þetta var voða gaman en ég er ekkert búin að fatta þetta almennilega ennþá...horfi bara á blómabúðina í stofunni heima sem er ummerki þess að ég var að opna og hlæ bara af þessu öllu saman. Ég fékk böns af blómum og gjöfum og allir vasar fráteknir á heimilinu...þurfti meira að segja að fara með blómvendi á annað heimili líka. Gaman að eiga góða að!
Annars ætla ég að koma og vera í vettvangsnáminu bara með ykkur ég hef nefnilega ekkert heyrt frá þessari Sigríði og veit því ekkert hvað ég á að gera. Þannig að við sjáumst kannski á mánudag eða allavega í vikunni.
Kv frá kjálkanum
Pálína

3 Comments:
At 10:49 f.h.,
Fyrsti A 2004 said…
hæbbs,
frábært að allt gekk svona vel!! vona bara að þú getir sýnt okkur myndir af myndunum þínum :)
kv Harpa
At 3:35 e.h.,
Nafnlaus said…
Hæ, til hamingju með þetta Pálína.. ég segi bara sama og Harpa það væri rosa gaman að sjá myndirnar:)
kv María
At 4:38 e.h.,
Nafnlaus said…
Segi það sama og hinar.. æði að allt gekk svona vel hjá þér og langar að sjá hvað þú ert að gera... heldur kannski sýningu nær höfðuborginni næst :)
Skrifa ummæli
<< Home