Gaman að læra....vitlaust!
Bekkjartímar í þroskasálfræði eru að verða uppáhaldstímarnir mínir... það er sama hvað ég reyni að undirbúa mig fyrir þessa tíma, alltaf ranka ég við mér eftir lestur tuga blaðsíðna að ég hafi verið að undirbúa mig fyrir vitlausan bekkjartíma. Sumir gætu haldið að ég væri eitthvað treg...en þar sem ég viðurkenni aldrei að ég sé eitthvað heimsk eða að vandamálið sé eitthvað tengt óskipulagi mínu eða vanfærni í að fara eftir skipulagi, þá vísa ég þessu beint til föðurhúsanna. Vandamálið er innan veggja KHÍ hjá þeim Ingibjörgu og Möggu, ruglandi svona í manni með þessum bekkjartímum. Fyrirlestur úr 9.kafla en bekkjartími í 7.kafla...how am I supposed to keep up with this shii...!
Nældi mér í ælupest eftir skóla (ef það er hægt) búin að vera eitthvað hálfkrank í maganum síðan ég bjó til pizzu í fyrradag, og loks skilaði sér öll vikan í klósettið upp um munnvikin á mér. En ef þið haldið að ég komi grá og guggin gangandi af næringaskorti í skólann á morgun, þá er það mesti misskilningur, er komin með lystina og sit og ét kex og dýfi ofan í mjólk. En þar sem ég misskildi rétt einu sinni bekkjarskipulagið hjá þeim þroskasálfræðingum Ingu og Möggu sit ég með doðrantinn fyrir framan mig að reyna að lesa þetta...þar sem deginum var varið með höfuðið ofan í einhverju allt öðru en bók...!
Segiði svo að ég leyfi ykkur ekkert að fylgjast með mér....
kv Pálína

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home