Gellurnar í Þriðja A

3.A bekkur Grunnskólaskor KHÍ

10.10.2006

Gellurnar � �ri�ja A

Gellurnar � �ri�ja A
Update frá fyrirheitna landinu!

Sælar allar! Gyða hérna í góðum gír í Þýskalandi.
Hér er lífið yndislegt. Ég bý í þriggja hæða einbýlishúsi með trommaranum mínum og við erum dugleg að halda partý og grillveislur, það er ennþá glampandi sól hér alla daga og maður er bara á stuttermabolnum með einn kaldan.
Svo erum við bara á fullu að semja nýtt efni og spila og spila.
Bjórinn er ódýr, karlmennirnir eru með möllet og ég verð betri í þýskunni með hverjum deginum þannig að lífið er frekar fresh.
Soldið skrýtið samt að vera ekki í skólanum:) Til hamingju allar með afmælin og börnin og allt saman.
Ég kem með meira update síðar.
Laters
-Gyða Germaníufari.

7 Comments:

  • At 11:30 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Hey gaman að heyra frá þér Gyða:) gott að allt gengur svona vel og að þú sért ánægð..en hvað er möllet?? as in "karlmennirnir eru með möllet" ;)
    Tchus María.

     
  • At 12:12 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Gott að allt gengur vel í útlandinu... væri til í að vera í partýum og grillveislum í staðin fyrir að fara í vettvangsnám....

    EEEn María möllet held ég að sé mullet... ættir þú ekki að vita það hárgreiðslukonan sjálf ;) en hér á þessari slóð getur lesið fullt um hvað þetta er http://en.wikipedia.org/wiki/Mullet_(haircut)

    ...sumir myndu kannski kalla þetta einfaldlega sítt að aftan :)

     
  • At 11:12 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Frábært að heyra frá þér Gyða, við vorum einmitt að tala um þig í enskutíma í gær þegar Jónsi var að halda fyrirlestur um af hverju rokktónlist væri alltaf kennt um ef einhver snappaði... umræðan hættti einhvern veginn að vera um það og fór beint útí það að segja kennaranum frá "Giðer" sem tattúveraði einhvern tónlistarkarl á hendina á sér og flutti til Þýskalands til að upplifa drauminn

    kv. Elín

     
  • At 11:44 f.h., Blogger Fyrsti A 2004 said…

    Já María mín, möllett er sko sítt að aftan. Þetta er skelfilegt og þessir þýsku þursar skarta þessu eins og ekkert sé! Ég hélt að Sameinu þjóðirnar og Evrópubandalagið höfðu sett ákvæði þess efnis að skott og möllett væri fyrirbæri sem væri bannað með lögum!
    Tómir standpínulúðar skal ég segja ykkur!
    Haha Giðer. Þessi kona er náttla meistari:) Og jú mar verður nú að grípa tækifærin þegar þau gefast, bjór og gítarspil, það er draumurinn!
    Hérna er slóð á mynd af húsinu okkar Bill: http://myspace-832.vo.llnwd.net/00127/23/87/127987832_l.jpg
    Castle Grayskull eins og við köllum það. En það eru komnir gluggar í efrihæðina.
    Adios skvíses.

     
  • At 12:16 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Gyða þú ert mega! Þegar ég verð stór ætla ég að verða eins og þú.
    Ótrúlega gaman að fá fréttir af þér, ekkert smá stórt húsið sem þið búið í.

    Ég bið að heilsa standpínulúðunum :)

     
  • At 6:31 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    gaman að fá fréttir af þér Gyða, ekki amalegt húsið sem þú býrð í!! ekki slæmt að lifa svona spennandi lífi....þú ert náttúrulega á fullu í fjarnáminu með er það ekki? ;-) híhí

    kv Harpa

     
  • At 2:45 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Gaman að heyra að allt gengur vel:)

     

Skrifa ummæli

<< Home