Letin í ykkur
Jæja hvurslags leti er þetta í ykkur eiginlega kerlingar. Þið þykist ætla að blogga vikulega og svo gerist ekki neitt. Endilega komið nú með eitthvað gott slúður, mér leiðist svo að vera að læra. Ég er bara búin að vera í því að sofa yfir mig alla þessa viku mætti ekki í tíma á mánudag, þriðjudag og fimmtudag.... en ég mætti þó á miðvikudaginn.. minnir mig!!
Eruð þið ekki orðnar spenntar fyrir árshátíðinni? Ég er allavega drulluspennt. Búin að kaupa mér súper-lím sem ég ætla að nota til að líma skóna við lappirnar á mér og kannski líka í túlann á mér þegar hann Ólafur "minn" kemur nálægt. Ætla nefninlega ekki að endurtaka leikinn frá því í fyrra.
Jæja skvíses fariði nú að blogga.
Kv. Elín

5 Comments:
At 3:06 e.h.,
Nafnlaus said…
Nei þú mátt ekki líma túllann á þér, Óli kallinn hlakkar svo til að hitta þig aftur:O) Ég er orðin ferlega spennt, get ekki beðið:O)
Best að halda áfram að læra fyrir kerlingarálkuna:S
At 3:06 e.h.,
Nafnlaus said…
Þessi athugasemd hefur verið fjarlægð af stjórnanda bloggs.
At 6:08 e.h.,
Nafnlaus said…
Ójá ég er spennt! Verst að það eru einhver verkefni sem þurfa að klárast áður... en spurningin er!!!! Ætlar einhver á keilukvöld í kvöld????
At 7:43 e.h.,
Nafnlaus said…
Ég er líka svaka spennt... þetta verður svo gaman.
Sigrún: ég, Elín og Elva erum að fara á keilukvöld.
At 12:01 e.h.,
Nafnlaus said…
jújú það er nú komin smá tilhlökkun í mann....var í ljósum áðan og lita á mér hárið og svona...svo eru það bara neglurnar í vikunni ;-)....spurning samt í hverju maður fer?!?
Villa vantar þig pils? ;-)
kv Harpa
Skrifa ummæli
<< Home